433

Íslendingur í mikilvægu hlutverki á Emirates í kvöld

Mynd
Getty Images

Gylfi Þór Orrason verður dómaraeftirlitsmaður á seinni leik Arsenal og Sporting í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í London í kvöld. Þetta kemur fram á vef KSÍ.

Úr færslu KSÍ:

Þetta er stórt verkefni fyrir Gylfa, sem er afar reynslumikill á þessu sviði, og ánægjulegt að sjá fulltrúa íslenskrar knattspyrnu með mikilvægt hlutverk þegar svona langt er komið í UEFA-móti félagsliða.

Um er að ræða seinni leik liðanna, en Arsenal leiðir viðureignina eftir eins marks sigur í fyrri leiknum.  Dómarakvartett leiksins kemur frá Frakklandi og VAR-dómararnir frá Þýskalandi og Belgíu.

Meistaradeild UEFA (karlar)

London (Emirates Stadium)

Arsenal FC (ENG) - Sporting CP (POR) 


  • Dómari: François Letexier FRA

  • Aðstoðardómari 1: Cyril Mugnier FRA

  • Aðstoðardómari 2: Mehdi Rahmouni FRA

  • 4. dómari: Stéphanie Frappart FRA

  • VAR dómari: Bastian Dankert GER

  • Aðstoðar VAR dómari: Bram Van Driessche BEL

  • Dómaraeftirlitsmaður: Gylfi Þór Orrason ISL

  • Eftirlitsmaður: Angelo Chetcuti MLT