Ótrúlegt myndband sýnir augnablikið þegar björgunarteymi bjargar tveimur drengjum frá drukknun eftir að þeir voru að synda undir bryggju.
Atvikið átti sér stað í standbænum Blackpool á Englandi. Hinn 10 ára gamli Subby og 12 ára gamall frændi hans, Kizza, voru að leika sér undir bryggju á meðan móðir þeirra fylgdist með. Björgunarteymi fór strax á staðinn þegar ljóst var að drengirnir voru í hættu, sjá má myndbandið hér fyrir neðan.
Móðir Subby lýsir þessu sem martröð í samtali við Mirror og lýsir því hvernig hún kallaði á 10 ára son sinn: „Ég vissi að hann myndi halda lífi ef hann heyrði í mér kalla að fara ekki í kaf,“ segir hún. „Vatnsyfirborðið reis svo hratt og sé horfði á hann fara í kaf.“
Í þessu ótrúlega myndbandi sést hvernig björgunarteymið missir tak á Subby áður en þeim tekst að ná honum aftur. Í kjölfarið fara þeir og bjarga Kizza. Atvikið átti sér í maí síðastliðnum en myndbandið er nú birt í tilefni af alþjóðlegum forvarnardegi gegn drukknunar en móðirin, Zully, mun koma fram á viðburði í Blackpool á morgun.
„Þegar ég sá Zubby fara upp í björgunarbátinn þá var það eins og kraftaverk. Ég hélt að hann væri farinn,“ segir Zully. „Sjórinn getur verið svo grimmur, honum er alveg sama hver þú ert, hann bara tekur þig. Ég passa vel upp á son minn núna, við vorum í miklu uppnámi yfir þessu. Þetta hefur komið fyrir ástvini mína og þetta getur svo auðveldlega komið fyrir aðrar fjölskyldur.“