Pressan

Lögreglumenn náðust á upptöku að tala um minnihlutahópa og mótmælendur: „Hún datt eins og Cristiano Ronaldo“

Mynd
Gemma Barnes. Skjáskot/Instagram/YouTube

Þrír lögreglumenn náðust á upptöku vera að ræða ólöglega leit á svörtu fólki, tala um transmannskju sem „það“ og hrinda mótmælanda.  

Upptakan var gerð í janúar 2023 í kjölfar mótmæla fyrir utan lögreglustöð í Norfolk á Englandi. Þar var dýraverndunarsinninn Gemma Barnes að taka upp mótmælin, var henni hrint og myndavélin tekin af henni. Myndavélin lá á borðinu þegar lögreglumennirnir þrír töluðu saman. Í kjölfar málaferla fékk Gemma myndavélina sína aftur og hefur nú gert upptökuna opinbera á Youtube.

Í einni klippunni heyrist einn lögreglumannanna segja: „Ég get stoppað IC3 [svart fólk] konu ólöglega og svo þegar ég handtek þær þá verður það svaka mál.“ Annar svarar þá: „Þú ert svört og þú varst að óhlýðnast.“

Gemma kvartaði til lögregluembættisins þar sem lögreglumennirnir starfa árið 2023 en fékk þau skilaboð að þeir myndu fá frekari þjálfun.

Einn lögreglumaðurinn talar svo um Gemmu sjálfa. „Hún er algjör sóun á plássi.“ Fóru þeir svo yfir eigin upptöku af þegar henni er hrint í jörðina. „Hún datt eins og Cristiano Ronaldo“ Þá sagði annar: „Það er flott hvað þú ert einbeittur, þú hendir niður f**** Gemmu Barnes og svo ertu bara „jæja, næsti mótmælandi“. Þá tala þeir um einn mótmælanda, sem er trans. „Þetta bleikhærða fyrirbæri, hvað sem það var, hán.“

Mótmælin fyrir utan lögreglustöðina snerust um dauða dúfu. Eldri maður á rafskutlu fyrir hreyfihamlaða sást á öryggismyndavél keyra yfir dúfuna ítrekað. Lögregla ræddi við manninn og aðhafðist ekkert.

Gemma og annar mótmælandi voru ákærðar fyrir mótmælin en voru sýknaðar, það var ekki fyrr en eftir að því máli lauk sem hún fékk myndavélina sína aftur og uppgötvaði að hún hefði verið í gangi á meðan lögreglumennirnir töluðu saman. „Ég átti von á að það væri búið að eyða upptökunum,“ sagði hún við Mirror. „Ég hefði haldið að myndavélin yrði sett í einhvern skáp eða yrði batteríslaus. Svo hélt ég áfram að hlusta og fattaði hvað þetta var mikið klúður hjá þeim. Ég trúði ekki mínum eigin eyrum. Vanhæfnin er alveg ótrúleg. Magnað að heyra að enginn af þeim segir neitt við þessum ummælum sem þarna falla.“

Málið er nú til skoðunar hjá lögregluembættinu. „Við vitum að sumt sem er verið að deila mun draga úr trausti almennings til lögreglunnar,“ segir í tilkynningu. „Við erum að fara vandlega yfir þetta efni og munum grípa til aðgerða í samræmi við sönnunargögnin.“

Hér má skoða alla upptökuna: