Hvað er betra í vikulokin en ljúffengur kjúklingur sem fljótlegt er að elda?
Innihald
- 800 g Úrbeinuð kjúklingalæri
- 1 stk. Rauðlaukur
- 1 msk. Timjan
- 3 dl kjúklingasoð
- 2 Dósir sýrður rjómi 36%
- 2 msk. Dijon sinnep
- Salt og pipar
- Smjör til steikingar
- Fersk steinselja
Aðferð
- Byrjið á að hita pönnu með dálitlu smjöri, kryddið kjúklinginn með salti og pipar og steikið báðum megin þar til vel brúnaður.
- Setjið á disk og lækkið aðeins hitann á pönnunni.
- Steikið laukinn í 2-3 mínútur eða þar til hann mýkist aðeins.
- Kryddið með timían, salti og pipar.
- Hellið kjúklingasoði á pönnuna, skafið vel botninn og leyfið að sjóða í nokkrar mínútur.
- Bætið þá sýrða rjómanum út á ásamt Dijon sinnepi.
- Leyfið aðeins að malla og smakkið ykkur til.
- Setjið að lokum kjúklinginn út í sósuna og leyfið að eldast í um það bil 10 mínútur við meðalhita.
- Stráið ferskri steinselju yfir að lokum og berið fram.
Gott með pasta eða sætum kartöflum og fersku salati.
Þessi uppskrift er úr smiðju Nettó.