Fréttir

Ellefu handteknir vegna manndrápsins í Vallargerði - Tveir handteknir erlendis

Mynd
Frá Vallargerði. Mynd: Já.is

Búið er að handtaka ellefu manns vegna manndrápsins í Vallargerði í Kópavogi, tveir sitja í gæsluvarðhaldi og einum sleppt úr haldi. 

Vísir greinir frá því að tveir hafa verið handteknir erlendis, hvor í sínu Evrópulandinu, vegna málsins. Maðurinn sem lést var pólskur ríkisborgari. Þá er verið að leita að eggvopni sem hafi verið notað. Búið er að ráðast í húsleitir vegna málsins. 

„Í raun og veru kemur útkall um mann utandyra með áverka og lögreglan fer í það og í ljós kemur að þarna er maður með mikla áverka. Hann er fluttur á slysadeild og í kjölfarið fáum við málið til rannsóknar,“ sagði E. Agnes Eide Kristínardóttir við fréttastofu Sýnar.

„Það er nú þegar búið að handtaka ellefu manns, sumir eru lausir, aðrir eru í gæsluvarðhaldi, sumir eru enn þá bara í fangageymslu. Tveir hafa verið handteknir erlendis. Við teljum að þarna hafi verið ráðist á þennan aðila innandyra í húsinu og til þess hafi verið notað eggvopn.“