Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus, svarar skáldinu Hannesi Péturssyni í langri og ítarlegri grein í Morgunblaðinu í dag.
Líkt og fjallað var um fyrr í vikunni skrifaði skáldið langa og ítarlega grein þar sem farið er háðsorðum um þá sem vilja segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst næstkomandi þar sem spurt verður hvort Ísland eigi að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Notar skáldið orðin „Eldhaf“ og „Brennandi hús“, sem hann kallar „ruslyrði“.
Sjá frétt: Hannes fer háðsorðum um „eldhafið“ og „brennandi húsið“
Hannes Hólmsteinn segir þetta hafa verið reiðilestur hjá skáldinu og hann hafi hugsað til þeirra alkunnu orða: “Ef við munum ekki söguna, þá eru við dæmd til að endurtaka hana.“ Vill Hannes Hólmsteinn, ólíkt Hannesi skáldi, ekki að þjóðin segi já við aðildarviðræðum við Evrópusambandið í ágúst.
„Af er sú tíð, þegar skáldið úr Skagafirði orti, að fullvissan væri marklausari en efinn. Það var enginn efi í grein hans, en fullvissan menguð heift,“ skrifar Hannes Hólmsteinn. Segir hann meðal annars að kenning skáldsins um samningasnilli Gissurar Þorvaldssonar sé úr lausu lofti gripin og Íslendingar hafi lokast í fátæktargildru með því að ganga Noregskonungi á hönd.
„Hannes Pétursson gerir mikið úr því í reiðilestri sínum, að Íslendingar séu fáir og smáir, svo að engan muni um að hefja eða hætta viðskiptum við þá. En það eru rök gegn aðild, ekki með því. Íslendingar yrðu áhrifalausir innan Evrópusambandsins, af því að þeir eru fáir og smáir. En það, sem aðra munar ekki um, munar okkur um,“ segir Hannes Hólmsteinn. „Eitt fallegasta orð tungunnar er „sálufélag“. Hannes Pétursson vill eiga sálufélag við Þórarin Nefjólfsson og Gissur Þorvaldsson. Ég vil eiga sálufélag við Einar Þveræing og Jón Sigurðsson. Ég vil vera vinur Brussel-manna, en ekki þegn þeirra.“