433

Minningarsteinn afhjúpaður til heiðurs Sigursteini Gíslasyni í kvöld

Mynd
Í kvöld á bikarleik ÍA og Víkings verður afhjúpaður minningarsteinn til heiðurs Sigursteini Gíslasyni. Steini Gísla hafði djúp og varanleg áhrif á ÍA og allt samfélagið sem umlykur félagið. Steinninn hefur verið reistur við leikmannainnganginn á Elkemvellinum – þar sem leikmenn ganga út á völlinn. Það er vel við hæfi, því þaðan hóf Steini ótal sinnum gönguna inn á völlinn til þess að leiða sitt lið til sigurs.

Til að heiðra minningu Steina Gísla mun leikdagsboltinn framvegis hvíla á steininum og verða tekinn með af honum inn á völlinn fyrir alla leiki ÍA á Elkemvellinum.

Sigursteinn lék 335 leiki fyrir ÍA og skoraði í þeim 40 mörk. Á glæsilegum ferli sem leikmaður með ÍA og KR vann Sigursteinn 9 Íslandsmeistaratitla og 3 bikarameistaratitla – og er sigursælasti leikmaður íslenskrar knattspyrnusögu.

„Við þökkum S. Helgasyni fyrir að gefa steininn, og Trésmiðjunni Akur, Blikksmiðju Guðmundar, Steðja, ÞÞÞ og Þrótti fyrir ómetanlegt framlag við að fullgera steininn og koma honum fyrir," segir á vef ÍA.