FH er með tvö stig á botni Bestu deildar karla eftir níu umferðir. Fall blasir við liðinu ef það réttir ekki hressilega úr kútnum. Staða þess var rædd í hlaðvarpinu Mín skoðun á dögunum.
FH fór í miklar breytingar í vetur en uppskeran hefur verið afar dræm sem fyrr segir. „Fyrir hönd FH-inga hef ég bara áhyggjur af þessu,“ sagði Valtýr Björn í þættinum.
Kristinn Kjærnested, fyrrum formaður knattspyrnudeildar KR, segir FH ekki mega gleyma hversu stórt félag það er.
„Mér finnst FH sem klúbbur vera farinn að tala sig í það að þetta sé bara ákveðin vegferð í gangi, það sé bara eins og það er og það eigi ekki að kvika út frá því.
FH er gamalt stórveldi og á þessari öld hefur ekkert félag unnið deildina oftar. En mér finnst allt tal í Hafnarfirði ekki vera eins og þetta sé stórkúbbur.“
Kristinn telur enn fremur að góðir leikmenn séu að koðna niður í liði FH eins og staðan er í dag.
„Þetta er grafalvarlegt mál. Ég ætla bara að segja það hreint út, ég hef bara gríðarlegar áhyggjur.“