433

Ekki það sem stuðningsmenn Vals vildu heyra

Mynd
Mynd/KSÍ

Það er enn óvíst hvenær Patrick Pedersen, lykilmaður Vals, snýr aftur á knattspyrnuvöllinn eftir meiðsli.

Patrick var til viðtals á RÚV í tilefni að því að sérfræðingar hér á landi höfðu valið hann besta erlenda knattspyrnumanninn í karlaflokki sögu Íslands.

Sagði hann verðlaunin mikinn heiður en var einnig spurður út í meiðsli sín. Danski framherjinn sleit hásin í bikarúrslitum gegn Vestra í júlí í fyrra.

„Mér líður mun betur en endurhæfingin hefur ekki gengið smurt fyrir sig. Ég fékk sýkingu í sárið en mér batnar smám saman,“ sagði Patrick.

Tíu umferðir eru búnar af Bestu deildinni. Valur er í fimmta sæti með 15 stig og myndi án efa þiggja það með þökkum að fá stjörnuleikmann sinn til baka sem fyrst.