433

Jökull í öruggu starfi og lykilmenn Stjörnunnar hafa mikla trú á honum

Mynd
Besta deildin Stjarnan
Besta deildin Stjarnan

Jökull Elísabetarson er í öruggu starfi í Garðabænum og engar hugmyndir um að skipta út þjálfaranum. Þetta herma heimildir 433.is úr Garðabænum.

Stjarnan tapaði í gær 3-1 á heimavelli sínum í Garðabæ gegn Íslandsmeisturum, Víkings. Þetta var sjöundi leikur liðsins í röð í deildinni án sigurs, uppskeran aðeins eitt stig.

Svo virðist sem stuðningsmenn Stjörnunnar kalli eftir breytingum en Jökull gerði virkilega vel með Stjörnuna á síðustu leiktíð og kom liðinu í Evrópusæti.

Stjórnendur Stjörnunnar huga hins vegar ekki að breytingum, telja þeir Jökul rétta manninn til að snúa genginu við.

Samkvæmt heimildum 433.is eru allir lykilmenn Stjörnunnar á bak við Jökul og hafa mikla trú á því að liðið komist á skrið undir hans stjórn.

Eftir tvo sigra í fyrstu tveimur leikjum tímabilsins hefur liðið eins og fyrr segir sótt eitt stig af 21 mögulegu.

Jökull hefur stýrt Stjörnunni frá árinu 2023.