433

Hilmar Árni tekur til máls eftir að margir í Garðabæ voru sagðir reiðir - „Er í raun svigrúm fyrir það að hugsa öðruvísi?“

Mynd

Aðstoðarþjálfari KR, Hilmar Árni Halldórsson, hefur vakið athygli með pistli þar sem hann gagnrýnir hörð viðbrögð við umdeildu myndbandi úr leik 3. flokks Stjörnunnar. Hann spyr hvort fólk megi ekki hugsa sjálfstætt?

Í leiknum tapaði Stjarnan illa fyrir Fjölni og vakti sérstaka athygli hvernig markvörður liðsins var notaður í uppspili. Myndbönd fóru í dreifingu og viðbrögðin voru hörð.

Hilmar telur að umræðan hafi farið úr böndunum og segir meðal annars. „Fyrstu skynsömu viðbrögð við öllu slíku sem við höfum ekki séð oft áður… ætti að vera. Þetta er öðruvísi, hver ætli sé hugsunin?“

Meira:
Myndband úr Garðabæ í mikilli dreifingu og foreldrar í bænum sagðir öskuillir – „Þetta er bara viðbjóður“

Hann lýsir þjálfaranum Olgeir Sigurgeirsson sem hugrökkum og segir. „Hugrakkari einstakling er erfitt að finna,“ og hrósar honum fyrir að ögra rótgrónum hugmyndum í þjálfun.

Hilmar gagnrýnir jafnframt hvernig fólk dæmir án samhengis.„Ég er búinn að sjá myndbandið en það er auðvitað bara eins og að lesa fyrirsögnina… ég hef engin svör.“

Að lokum spyr hann hvort svigrúm sé fyrir nýjar hugmyndir í íslenskum fótbolta. „Er í raun svigrúm fyrir það að hugsa öðruvísi?“ og veltir fyrir sér ábyrgð samfélagsins á því að leyfa þjálfurum og leikmönnum að þróast.