433

Gjörðir Simeone á leið af vellinum í gær vekja mikla athygli - Sjáðu myndbandið

Mynd

Diego Simeone, stjóri Atletico Madrid, er töluvert gagnrýndur á samfélagsmiðlum fyrir hegðun sína eftir tap gegn Arsenal í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í gær.

Arsenal vann leikinn á Emirates í gær 1-0 og einvígið samanlagt 2-1. Liðið er því komið í úrslitaleik keppninnar í fyrsta sinn í tuttugu ár.

Eftir fyrri leikinn í Madríd vakti athygli að Simeone reiddist mjög þegar Ben White steig á merki Atletico á leið út af vellinum.

Í ljósi þess ráku margir upp stór augu þegar Simeone gerði slíkt hið sama í gær, en hann virtist viljandi fara af leið til að stíga á merki Arsenal.

Myndband af þessu er hér að neðan.