433

Henry yfirgaf settið í beinni útsendingu

Mynd
Thierry Henry. Mynd/Getty

Thierry Henry gekk tímabundið af setti í beinni útsendingu hjá CBS eftir orðaskipti milli Jamie Carragher og Peter Schmeichel.

Umræðan fór fram eftir sigur Paris Saint-Germain á Liverpool í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar á miðvikudag, þar sem PSG vann 2-0.

Schmeichel var aðeins ánægðari með varnarleik Liverpool en Carragher, sem lék einmitt í vörn Liverpool á árum áður.

„Þeir voru þéttir til baka og komu í veg fyrir stærra tap,“ sagði Daninn.

Carragher var allt annað en sáttur með sitt lið og ósammála Schmeichel. „Liðið rifnaði í sundur,“ sagði hann.

Henry sá enga ástæðu til að bíða þegjandi á settinu á meðan þeir rifust og fór því. „Má ég koma aftur?“ spurði hann síðar meir, allt í góðu glensi gert.