433

Ævintýri Norðmanna lokið eftir skell í Portúgal

Mynd
Getty Images

Öskubuskuævintýri Bodo/Glimt í Meistaradeild Evrópu er lokið, en liðið steinlá gegn Sporting í Portúgal í kvöld.

Norska liðið tók 3-0 forystu með sér úr fyrri leiknum en það dugði ekki til.

Goncalo Inacio, Pote og Luis Suarez sáu til þess að heimamenn voru 3-0 yfir eftir venjulegan leiktíma í kvöld. Samanlagt 3-3 og því farið í framlengingu.

Þar kom Maxi Araujo Sporting snemma yfir og Rafael Nel innsiglaði svo 5-0 sigur.

Sporting vinnur 5-3 og mætir Arsenal eða Bayer Leverkusen í 8-liða úrslitum.