Mosfellingar létu veðrið ekki pirra sig um helgina og var góð mæting á Kjúklingafestivalið sem var hluti af bæjarhátiðinni Í túninu heima í Mosfellsbæ.
Simmi Vill mætti á svæðið með nýjungar frá Barion; Wingman, Dirty Burger and ribs. Ísfugl og Matfugl sáu um að afgreiða yfir 2000 matarskammta.