Ísdrottningin Ásdís Rán Gunnarsdóttir segir mataræðið skipta öllu máli og setur allan unninn mat á bannlista, en leyfir sér þó um helgar. Hún er mikill sælkeri og elskar góð vín og framandi hreinan mat. Hún deildi nýverið með okkur hvað hún borðar á venjulegum degi. Hér deilir hún uppskrift að ketó pítsu.
Sjá einnig: Þetta borðar Ásdís Rán á venjulegum degi
„Mér finnst gaman að gera ketó pítsu fyrir okkur um helgar því ég er ekki hrifin af því að gefa neinum á mínu heimili hveiti, svo ég geri gómsætar ketó pitsur sem eru mjög auðveldar þegar þú nærð tökum á aðferðinni,“ segir Ásdís Rán.
Meðalpítsa – tvöföld uppskrift fyrir stóra pítsu
- 100 g rifinn mozarella-ostur
- 1 góð matskeið rjómaostur
- 1 egg
- 50 g möndlumjöl
- Dass af lyftidufti, oregano, salti, blönduðu kryddi að vild og hvítlauksdufti.
- Osturinn er settur í örbylgjuofn í eina mínútu, tekið út og blandað vel svo aftur inn í 30-60 sekúndur.
- Blandaðu möndluduftinu, egginu og kryddinu saman, og bættu því svo við bráðnaða ostinn.
- Þegar deigið er tilbúið þá getur það verið slímugt, þá er sniðugt að setja það á smjörpappír og fletja það út með öðrum smjörpappír yfir deigið, og slétt út með handafli í hring eða eftir smekk.
- Síðan er það sett í sirka 10-15 mínútur í ofn á 200 gráður, þar til það verður smá gullið.
- Á meðan er gott að gera ketó álegg fyrir pítsuna: skinka, ostur, sósa, pepperóní, chilli, nautahakk, grænmeti, ostur eða annað kolvetnalaust meðlæti.
- Sósa getur verið rjómaostur með hvítlauk, kolvetnalaus pítsasósa eða grísk jógúrt.
- Álegginu skellt á pítsuna ásamt rifnum mozarella, kryddað að vild og pítsan sett aftur inn í 10-15 mínútur og grilluð þar til stökk. Málið dautt og krakkarnir ánægðir.