Halla Björg Björnsdóttir sér um Ketóhornið á DV. Hér deilir hún uppskrift að ketó-kjötsúpu.
Á þessum árstíma yljar manni ekkert eins vel líkt og kraftmikil íslensk kjötsúpa stútfull af orku. Hvort sem maður sýður súpukjöt sérstaklega eða nýtir tilfallandi afganga. Ég átti afgang af grísalundum og lambalærisneiðum í frystinum frá síðustu sveitarferð og þær beinlínis örguðu á komast í heitann súpupott ásamt dýrindis lágkolvetna grænmetis félögum.
Hráefni:
1.5-2 kíló súpukjöt eða afgangskjöt
1 laukur
1/2-1 höfuð blóm/spergilkál
1/2 stilkur púrrulaukur
3-4 stilkar selleryí
1/4-1/2 hvítkálshaus
2 msk salt
1-2 grænmetisteningar
3 lítrar vatn
Aðferð:
- Skera allt grænmetið í hæfilega bita.
- Sjóða súpukjötið og fleyta ofan af því froðunni eða notast við niðurskorið afgangs kjöt.
- Setja kjötið og grænmetið allt saman í pott , krydda og sjóða í 45-60 mín.
- Til að gera súpuna extra spennandi má einnig setja eins og eina msk af karrý og/eða tabasco eða sriracha útí. Veisla.