Matarbloggarinn Berglind er að gefa út sína þriðju uppskriftabók. Hún deildi nýlega með okkur hvað hún borðar á venjulegum degi. Hér deilir hún með okkur uppskrift að ljúffengri pestó-pítsu.
Sjá einnig: Þetta borðar Berglind matarbloggari á venjulegum degi
Pestópítsa
700 g hveiti
1 pakki þurrger (11,8 g)
1 tsk. salt
400 ml volgt vatn
4 msk. ólífuolía
Aðferð:
- Setjið öll þurrefnin saman í skál og blandið saman.
- Hellið volgu vatni ásamt ólífuolíu saman við og hnoðið þar til deigkúla hefur myndast.
- Setjið deigið í skál sem búið er að pensla að innan með matarolíu, plastið og leyfið að hefast í um klukkustund.
- Skiptið deiginu niður í 5-7 hluta og fletjið út nokkrar pitsur (9-12“) og setjið áleggið á.
Álegg
2½ krukka af Sacla-pestó með basilíku (um 450 g)
300 g kastaníusveppir
40 g smjör
1 rauðlaukur
Rifinn ostur
2 dósir mozzarellakúlur með basilíku (2 x 180 g)
Sólþurrkaðir tómatar frá Sacla
Klettasalat
Kasjúhnetur (saxaðar gróft)
Fersk basilíka
Ólífuolía með basilíku
Salt, pipar og hvítlauksduft
Aðferð:
- Skerið sveppina niður og smjörsteikið þá við miðlungs hita þar til þeir mýkjast örlítið, kryddið til með salti, pipar og hvítlauksdufti, leggið til hliðar.
- Penslið vel af pestó á hvern pitsubotn og raðið næst smjörsteiktum sveppum og rauðlauk yfir.
- Rífið næst ost yfir allt saman og bakið við 225°C í um 10 mínútur eða þar til botninn fer að gyllast í köntunum.
- Raðið þá mozzarellakúlunum á og bakið áfram í örfáar mínútur.
- Þegar pitsan kemur úr ofninum má pensla kantana strax með ólífuolíu með basilíku.
- Að lokum má setja klettasalat, kasjúhnetur, sólþurrkaða tómata og ferska basilíku yfir pitsurnar. Einnig er gott að hella smá ólífuolíu með basilíku yfir alla pitsuna.