Fókus

Grease-stjarna lifir sem „einbúi“

Mynd
Stockard Channing

Það eru liðin 48 ár síðan kvikmyndin Grease kom út og Grease æði skall yfir heimsbyggðina. Kvikmyndin varð gríðarlega vinsæl þar á meðal hér á landi þar sem hún var frumsýnd 20. janúar 1979 og fólk beið í löngum röðum eftir miðum í Háskólabíó. Tvöföld plata með tónlistinni rokseldist, brilljantín seldist upp og allir vildu læra Grease dansana. Framhaldsmynd kom út fjórum árum síðar, þó með öðrum leikurum og minni vinsældum.

Stockard Channing lék fyrirliða Pink Ladies kvennahópsins í myndinni, sem Olivia Newton-John gerist nýjasti meðlimurinn í. John Travolta lék aðalkarlhlutverkið, fyrirliða T-Birds. 

Mynd
Channing í hlutverki sínu sem Rizzo.

Channing er nú orðin 82 ára gömul og segist búa sem einbúi í London.

„Ég hef búið ein síðan ég missti maka minn, Daniel Gillham,“ sagði Channing í grein sem hún skrifaði fyrir Sunday Times. Kvikmyndatökumaðurinn og framleiðandinn Gillham lést árið 2014, 58 ára að aldri. Parið kynntist árið 1990 og var saman þar til Gillham lést en þau giftu sig aldrei.

Nokkrum árum síðar, rétt áður en kórónuveirufaraldurinn skall á, flutti Channing til London.

„Þetta var erfiðara en ég gerði mér grein fyrir, áfallið kom síðar,“ skrifaði hún um andlát Gillham.. „Lífsmynstur mitt breyttist og því flutti ég frá Maine,“ bætti hún við.

Mynd
Forsíða DV 20. janúar 1979.

Fjórgift og vildi aldrei börn 

Í öðru samhengi ræddi Channing, sem hefur verið gift fjórum sinnum, um þá ákvörðun sína að eignast ekki börn, en hún sagðist vissulega hafa íhugað það. Channing viðurkenndi að það væri „gott að hafa einhvern til að hugsa um sig,“ en bætti því við að „börn geti verið rétt eins eigingjörn og hver annar.“

Channing gekk fyrst í hjónaband með Walter Channing yngri árið 1963. Þau voru gift í fjögur ár áður en leiðir þeirra skildu árið 1967, en hún hélt eftir ættarnafni hans. Þremur árum síðar giftist hún Paul Schmidt, en þau skildu árið 1976. Sama ár giftist hún handritshöfundinum og framleiðandanum David Debin frá Hollywood. Þau unnu saman að þáttunum The Stockard Channing Show á meðan þau voru saman. Hjónaband þeirra varði í fjögur ár. Hún giftist síðan fjórða eiginmanni sínum, David Rawle, sem hún var gift á árunum 1980 til 1988. Tveimur árum síðar hitti hún Gillham og þótt parið hefði verið saman í næstum 25 ár giftust þau aldrei.

Mynd
Channing árið 2018.

Þrátt fyrir að lifa einangruðu lífi hefur Channing ekki hætt að vinna og leikstýrir hún nú leikritinu Krapp's Last Tape, sem frumsýnt verður í Edinborg síðar á þessu ári. Hún sagði þó við fjölmiðla að hún teldi að þetta gæti verið síðasta verk hennar í bransanum.

„Leiklist er eins og allt annað í lífinu; maður veit aldrei hvað gerist,“ skrifaði hún.

Líf Channing fjarri sviðsljósinu um þessar mundir felur í sér reglulega rútínu, þar sem hún útbýr salat á kvöldin, áður en hún hugleiðir, les og „sofnar fyrir klukkan ellefu“.

 

33 ára þegar hún lék 18 ára skólanema

Channing lék sitt fyrsta hlutverk á Broadway árið 1971, sjö árum áður en hún lék í Grease. Hún var 33 ára þegar hún lék hina 18 ára Rizzo, sem var í menntaskóla, þá tvígift og tvífráskilin að leika menntaskólanema.

„Fólk gæti sagt að leikararnir séu of gamlir, en Grease er ekki heimildarmynd; þetta er fantasía,“ sagði Joel Thurm, leikstjórnandi myndarinnar, við The Guardian um leikaraval sitt.

„Þetta er ævintýri sem ekki er tengd tölvuleikjum og hentar betur því leikararnir eru ekki unglingar. Það eina sem skipti máli við tökur var að allir leikararnir litu út fyrir að vera á svipuðum aldri, sem þeir gerðu.“