Fókus

Varpar ljósi á erfið samskipti eftir andlát Díönu: „Vertu viss um að við munum gleyma Díönu fljótt“

Mynd

Heimildir segja að Harry prins hafi vitað hvaða yfirlýsingar móðurbróðir hans, Charles Edward Maurice Spencer jarl, kæmi með í bók sinni um dauða Díönu prinsessu, móður Harry. „Harry vissi hvað stóð í bókinni þetta kom honum ekki á óvart,“ sagði heimildarmaður. 

Page Six greinir frá því að frændurnir hafi rætt bókina, Swan Song: Diana, My Sister, sem kemur út á þriðjudag, í heimsókn Harry í Althorp, ættareign Spencer-fjölskyldunnar, í júlí þegar Harry kom með Markle og börn þeirra til að sjá grafreit móður sinnar.

Bókin opnar löngu lokuð sár um erfiðleika hjónaband Karls og Díönu sem endaði með skilnaði í ágúst 1996.

Mynd

Í endurminningum sínum fullyrðir Spencer, sem var yngri bróðir Díönu, að Karl hafi sagt: „Vertu viss um að við munum gleyma Díönu fljótt“, í símtali dögum eftir að hún lést 36 ára að aldri í bílslysi í París í ágúst 1997.

Þetta er fullyrðing sem höllin hafnar og segir algjörlega óeðlilega fyrir mann með djúpa samúð, sem á þeim tíma var að takast á við sína eigin sorg og sorg sona þeirra:

„Þó að við tjáum okkur ekki um bækur af meginreglu, þá er Hans Hátign meðvitaður um að sársauki bróðurlegrar sorgar getur skyggt á skynsemina, haft áhrif á dómgreind og litað minni á þann hátt sem aðrir þekkja ekki, jafnvel mörgum árum eftir slíkan missi,“ sagði í svari frá höllinni. 

Julian Payne, fyrrverandi samskiptaráðherra konungsins, sagði við BBC að ummæli konungsins í bókinni væru „ekki orðbragð sem ég þekki“. Hann sagði að „mjög óvenjuleg“ yfirlýsing frá höllinni sýndi fram á „þá sterku tilfinningu sem hlýtur að hafa verið til þess að þeim fannst þau þurfa að fara út og leiðrétta þetta“.

Spencer segir að ummælin sem Karl lét falla fyrir næstum 30 árum endurspegli „uppsafnaða fyrirlitningu hans á Díönu og hrylling hans yfir því að heimurinn skyldi vera svo miður sín yfir dauða hennar.“

Mynd
Charles Edward Maurice Spencer.

Vildi ekki að synir Díönu gengu á eftir kistu hennar

Dauði Díönu, sem var afar vinsæl og elskuð um allan heim, skapaði óstöðugt andrúmsloft þar sem konungsfjölskyldan var sökuð um að sýna ekki tilfinningar og samkennd og virtist ekki vera í tengslum við almenningsstemninguna. 

Spencer, sem er 62 ára gamall, skrifar í bókinni um hvernig hann deildi við Karl um ákvörðunina um að leyfa Vilhjálmi og Harry, sem þá voru 15 og 12 ára, að ganga í jarðarför móður sinnar. Segist Spencer hafa fullyrt við Karl að Díana hefði aldrei viljað að ungir synir hennar þyrftu að þola slíka opinbera raun.  

Mynd

Harry, sem varð 42 ára í þessari viku, hefur ekki farið leynt með að gangan á eftir kistu móður sinnar hefur ásótt hann allar götur síðan. Hann sagði við Oprah Winfrey í heimildarmyndaseríunni The Me You Can't See  á Apple TV+ árið 2021: „Það sem ég man best eftir var hljóðið af hestunum sem gengu eftir götunni. Það var eins og ég væri utan líkama míns, bara að ganga með, gera það sem búist var við af mér, sýna einn tíunda af þeim tilfinningum sem allir voru að sýna.“

„Ekkert barn ætti að vera beðið um það, undir neinum kringumstæðum,“ hefur hann bætt við. Í eigin endurminningum sínum, hinni umdeildu metsölubók Spare frá árinu 2023, skrifaði Harry að frændi hans hafi kallað flutninginn „barbarískan“.

Harry, sem nú býr aftur í Bretlandi, hefur haldið nánu sambandi við Spencer. Hann er einnig náinn systrum Díönu, Sarah McCorquodale og Jane Fellowes, sem voru við skírnir beggja barna hans. Fráhverfur bróðir hans, Vilhjálmur prins, hefur hins vegar haldið sambandi sínu við Spencer-fjölskylduna leyndu og fjarri sviðsljósinu.

Mynd
Díana með syni sína á svölum Buckinghamhallar í júní 1988.

Í hjartnæmri ræðu við útför Díönu hét Spencer því að vernda syni hennar: „Við, blóðfjölskylda ykkar, munum gera allt sem við getum til að halda áfram þeirri hugmyndaríku og kærleiksríku leið sem þið stýrðuð þessum tveimur einstöku ungu mönnum.“

Þegar Spencer tilkynnti bók sína í ágúst sagði hann að hann hefði verið hvattur til að skrifa endurminningar eftir að hafa verið „kaffærður“ af beiðnum um viðtöl um Díönu í tilefni af því að 30 ár eru liðin frá dauða hennar á næsta ári. „Þetta hefur sannfært mig um að skrifa niður mínar eigin hugsanir og minningar, í eitt skipti fyrir öll, frekar en að þurfa að lesa aftur skoðanir annarra, sem margar hverjar eru byggðar á ósannindum sem hafa orðið viðurkenndar með tímanum,“ sagði hann.

„Markmið þessarar bókar er að segja sannleikann um Díönu frá sjónarhóli bróður hennar, rétt eins og ég reyndi að gera þegar ég talaði í jarðarför hennar. Eins og með minningarorð mín, vil ég tala fyrir hönd Díönu og gera það á opinskátt jákvæðan hátt.“

„Ég vona að þessi bók veki áhuga þeirra sem enn geyma minninguna um Díönu frá því hún var á lífi, og ég myndi gleðjast ef þeir sem eru of ungir til að muna eftir henni á blómaskeiði hennar finna, eftir að hafa lesið þetta, að þeir skilji hver hún í raun var: einstök, kraftmikil persóna, full af ást, persónutöfrum og sjálfsvafa, sem gaf lífinu allt og skildi heiminn eftir sem miklu betri stað, þrátt fyrir að yfirgefa sviðið á meðan hún var enn svo ung.“

Mynd
Karl og Spencer í Suður-Afríku í nóvember 1997, þremur mánuðum eftir andlát Díönu.