Fókus

Þetta þénuðu stjörnurnar fyrir The Odyssey

Mynd

Laun allra leikara í kvikmyndinni The Odyssey hafa verið afhjúpuð, þar á meðal hvað hver leikari fékk greitt fyrir hverja senu, þar sem myndin er sögð hafa kostað 250 milljónir dala.

Nýjasta mynd Christopher Nolan kom í kvikmyndahús í síðustu viku (17. júlí) og færir hún goðsagnakennda sögu gríska konungsins Ódysseifs á Íþöku og hættulega heimferð hans eftir Trójustríðið yfir á hvíta tjaldið.

Myndin hefur slegið í gegn og halað inn 264 milljónum dala í miðasölu á aðeins nokkrum dögum. Myndin var sú stærsta hérlendis síðustu helgi og myndin er stærsta opnun Nolan frá upphafi. 

Myndin er stjörnum prýdd með Matt Damon í hlutverki Ódysseifs, Anne Hathaway í hlutverki eiginkonu hans, Penelope og Tom Holland í hlutverki sonar þeirra, Telemachus. Eru þá aðeins þrír leikarar taldir.

Stjörnuprýddu leikaravali fylgir hár verðmiði, eins og sjá má á grein Times Entertainment þar sem uppgefin laun hvers leikara hafa nú verið birt.

Matt Damon

Damon 55 ára leikur Ódysseif og birtist oftar á skjánum en nokkur önnur persóna. Damon leikur í 46 senum og er sagður hafa þénað hæstu laun allra leikara, eða 15 milljónir dollara, sem jafngildir meira en 326.000 dollurum fyrir hverja senu.

Mynd

Tom Holland

Holland leikur Telemakkos, son Ódysseifs, í alls 24 senum. Sagt er að leikarinn hafi þénað 10 milljónir dollara fyrir stórmyndina, sem jafngildir um 416.666 dollurum fyrir hverja senu.

Mynd

Zendaya

Zendaya leikur Aþenu, sem var hálshöggvin fyrir framan Ódysseif. Vofa hennar ásækir hann alla myndina, en hún leikur aðeins í sex senum alls. Hún er sögð hafa þénað um 5 milljónir dollara sem samsvarar um 833.333 dölum fyrir hverja senu.

Mynd

Anne Hathaway

Hathaway, sem gengur nú með þriðja barn sitt, er sögð hafa þénað á bilinu 4-5 milljónir dala fyrir að túlka Penelópu, trygga eiginkonu Ódysseifs. Með aðalhlutverki í 16 senum samsvarar það um 312.500 dollurum fyrir hverja senu.

Mynd

Robert Pattinson

Pattinson leikur Antinous, sem reynir að sannfæra Penelope um að giftast sér á meðan hann leggur á ráðin um að myrða son hennar, Telemachus. Hann lék í alls 14 senum og þénaði að sögn um 6 milljónir dollara, 428.571 dollara fyrir hverja senu.

Mynd

Charlize Theron

Suður-Afríska leikkonan leikur Calypso, nýrfu sem heldur Ódysseifi föngnum í sjö ár. Theron leikur í tíu senum og er sögn hafa þénað á bilinu 5-6 milljónir dollara, 5-6 hundruð þúsund dollara fyrir hverja senu.

Mynd

Elliot Page

Page var ráðinn í hlutverk Sinons, grísks hermanns og frænda Ódysseifs sem berst hetjulega með honum í stríðinu í Trójustríðinu. Hlutverk sem er ekki í kviðu Homers, sem myndin byggir á. Page fékk að sögn 1,5 milljónir dollara í laun fyrir hlutverk sitt, en hann lék í sex senum alls. Laun hans fyrir hverja senu námu um 250.000 dollurum.

Mynd

Lupita Nyong´o 

Nyong´o leikur tvenn hlutverk, systurnar Helenu af Tróju og Clytemnestra. Hún þénaði 1,5 milljón dollara fyrir nokkrar senur sem samanlagt eru undir fimm mínútum í myndinni.

Mynd

Benny Safdie

Safdie leikur gríska hershöfðingjann Agamemnon, eiginmann Clytemnestra. Hann fékk 2 milljónir dollara í sinn vasa fyrir hlutverkið þrátt fyrir að vera næstum alfarið hulinn undir hjálmi sínum og skjátíma upp á aðeins fjórar mínútur.

Mynd