Fókus

Stjarnan úr Ferris Bueller's Day Off lýsir erfiðri reynslu við tökur

Mynd
Matthew Broderick, Mia Sara og Alan Ruck í hlutverkum sínum. Mynd: Getty.

Bandaríska kvikmyndin Ferris Bueller´s Day Off kom út 11. júní árið 1986, sló í gegn og á enn 40 árum síðar stóran hóp aðdáenda. Myndin fjallar um Ferris (Matthew Broderick) sem tilkynnir sig veikan í skólanum og fær kærustu sína, Sloane (Mia Sara), og besta vin sinn Cameron (Alan Ruck) með sér í lið til að eiga geggjaðan dag í Chicago.

Í tilefni af 40 ára afmælinu settist þríeykið niður og rifjaði upp tökurnar og viðurkennir Sara að hún hafi ekki skemmt sér eins vel á bak við myndavélarnar eins og persóna hennar í myndinni.

„Ég hef ekki mætt í viðtöl því að það var ekki góð reynsla fyrir mig að gera myndina Ferris Bueller,“ sagði hún við Sunday Times. Sara var yngst í leikarahópnum, aðeins 17 ára gömul.

„Ég er mér mjög meðvituð um hversu dýrmæt þessi mynd er og ég vil ekki valda fólki vonbrigðum. En okkur John kom ekki vel saman,“ sagði hún og átti þar við leikstjórann John Hughes.

Sara sagði að Hughes, sem lést árið 2009, hefði verið „undarlegur gaur“. Hún útskýrði að leikstjórinn vildi að allir leikararnir héngu saman og kynnti þau fyrir frönsku nýbylgjumyndunum.

„En hinir voru reyndir leikarar og ég var snobbaður New York krakki og hafði séð allar þessar kvikmyndir, svo hann var pirraður yfir þessu,“ sagði hún og bætti við að hún „hefði ekki haft tilfinningalegan þroska“ til að takast á við sitt eigið egó, eða annarra.

Jennifer Grey, sem lék eldri systur Ferris, Jeanie Bueller, sagði að leikstjórinn hefði „ekki verið eins og venjulegur fullorðinn einstaklingur“ en sagði Hughes, sem skrifaði handritið á aðeins sex dögum, snilling og að sjálf hefði hún náð góðri tengingu við hann.

Þrátt fyrir að hafa leikið í fjölda mynda á eftir sem margar urðu vinsælar dró Sara sig í hlé frá sviðsljósinu og sagði við Times að ferill hennar hefði ekki verið hamingjusamur á heildina litið.

Þrátt fyrir að Ferris Bueller´s Day Off hafi notið mikilla vinsælda varð aldrei af framhaldi, þrátt fyrir að leikstjórinn John Hughes hafi rætt möguleikann á því.