433

Fullorðnir karlmenn sagðir hafa fellt tár þegar Jökull var rekinn úr Garðabænum

Mynd

Sagt er að einhverjir leikmenn Stjörnunnar hafi farið að gráta þegar Jökull Elísabetarson var rekinn úr starfi þjálfara fyrr í sumar.

Jökull var rekinn eftir slæmt gengi í Bestu deildinni og Jón Þór Hauksson var ráðinn í hans stað.

Gengi Stjörnunnar hefur ekki náð flugi eftir að Jón Þór tók við og rætt var um þetta í Innkastinu á Fótbolta.net í gærkvöldi.

„Ég heyrði að það hefðu tár farið niður þegar Jökull er farin," sagði Elvar Geir Magnússon ritstjóra Fótbolta.net.

Tómas Þór Þórðarson segir leikmenn Stjörnunnar ekki hafa spilað þannig að þeir væru að gefa allt fyrir Jökul.

„Spiluðu þeir svona? Spiluðu þeir fyrir þjálfarann sinn,  það er eina leiðin til að sýna fólkinu upp í stúku sem er að borga peninga og blæða fyrir félagið. Það þýðir ekki að láta það leka út í gegnum vini ykkar að það hafi tár fallið þegar þjálfarinn labbaði út um hurðina. Stuðningsmanni er sama um það, farðu út á völl og sýndu það.“