433

Falsfréttir um framtíð framherjans frá Þýskalandi

Mynd
Woltemade Getty Images

Nick Woltemade verður áfram hjá Newcastle United samkvæmt nýjustu upplýsingum um framtíð þýska framherjans.

Undanfarið hafa verið sögusagnir um að Woltemade gæti yfirgefið félagið, en þær hafa nú verið kveðnar niður. Ross Wilson, yfirmaður knattspyrnumála hjá Newcastle, hefur samkvæmt fréttum engin áform um að selja framherjann eða lána hann frá félaginu.

Wilson er sagður vera mikill aðdáandi Woltemade og líta á hann sem mikilvægan hluta af framtíðaráformum Newcastle.

Umboðsmaður leikmannsins, Danny Bachmann, hefur jafnframt staðfest að fréttir um möguleg félagaskipti hafi átt upptök sín á fölsuðum samfélagsmiðlareikningum og eigi sér enga stoð í raunveruleikanum.

Woltemade sjálfur hefur engan áhuga á að fara frá Newcastle í sumar. Hann hefur sett sér metnaðarfull markmið fyrir komandi tímabil og er sagður vera kominn í fullt leikform eftir undirbúninginn.

Allt bendir því til þess að þýski sóknarmaðurinn verði áfram á St. James' Park á komandi leiktíð.