Jack Grealish, leikmaður Manchester City, hefur snúið aftur á æfingavöllinn eftir langt meiðslahlé sem setti stórt strik í reikninginn varðandi mögulega þátttöku hans með enska landsliðinu á Heimsmeistaramótinu.
Grealish gekkst undir aðgerð í febrúar vegna álagsbrots í fæti sem hann varð fyrir á síðasta tímabili þegar hann var á láni hjá Everton. Meiðslin héldu honum frá keppni í um fimm mánuði.
Áður en hann meiddist hafði Grealish sýnt góð tilþrif á lánstímanum undir stjórn David Moyes og spilað 22 leiki í þeirri von að endurheimta sitt besta form.
„Ég get ekki lýst því hversu góð tilfinning þetta var. Það eru fimm mánuðir síðan ég fór síðast í takkaskóna. Kominn aftur út á völl og þetta er besta tilfinning í heimi,“ skrifaði Grealish á samfélagsmiðlum.
Nú beinist allur fókus hans að því að komast aftur í toppform.