433

Hrósar Óskari og lærisveinum hans - „Ég væri alveg til í að vera framherji þar“

Mynd

Viðar Örn Kjartansson, fyrrum atvinnu- og landsliðsmaður og nú leikmaður Selfoss, var gestur Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikunni.

Viðar lék í Bestu deildinni síðustu tvö ár en fylgist nú með deildinni sem áhorfandi. Eins og margir hefur hann gaman að KR og fótbolta Óskars Hrafns.

[fvplayer id="4450"]

„Ég væri alveg til í að vera framherji þar, þú færð örugglega örugglega 4-5 færi í leik,“ sagði Viðar.

„Þetta er ótrúlega skemmtilegur fótbolti. Í fyrra voru þeir brothættir. Þeir fengu fullt af færum en fullt af mörkum á sig líka. Þeir fá alveg færi á sig í dag en eru samt að verjast betur.

Þeir eru auðvitað að fá svolítið af mörkum á sig. Ég held að þú vinnir ekki deild með því að fá á þig flestu mörkin, en miðað við hvernig þeir spila lítur þetta vel út. Þeir fengu bara á sig eitt mark í síðasta leik og það úr víti. Ef þær fækka aðeins mörkum á sig geta þeir allt.“

Nánar í spilaranum.