Knattspyrnuáhugamenn á Englandi þurfa að greiða fyrir að horfa á úrslitaleik Meistaradeildarinnar milli Arsenal og PSG á morgun eftir að TNT Sports ákvað að sýna leikinn ekki í opinni dagskrá.
Þetta er í fyrsta sinn frá stofnun Meistaradeildarinnar árið 1992 sem úrslitaleikurinn er ekki aðgengilegur fólki í Bretlandi að kostnaðarlausu.
Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands og stuðningsmaður Arsenal, hefur gagnrýnt ákvörðunina og sagt að úrslitaleikurinn eigi að vera aðgengilegur öllum.
TNT hefur þó ekki orðið við því og þarf að gerast áskrifandi til að sjá leikinn.