433

Færir aðdáendum góð tíðindi fyrir leikinn við Arsenal

Mynd
Getty Images

Ousmane Dembele, lykilmaður Paris Saint-Germain, kveðst klár í slaginn fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Arsenal um þarnæstu helgi.

Dembele meiddist í lokaleik tímabilsins í Frakklandi og var óttast um þátttöku hans í úrslitaleiknum. Þær áhyggjur voru þó óþarfar ef marka má orð hans í dag.

„Ég meiddist aðeins gegn Paris FC en mér líður vel og ég verð góður fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar,“ segir Dembele, sem vann Ballon d'Or í fyrra.

„Vonandi verð ég á vellinum, ef þjálfarinn velur mig!“ segir hann enn fremur.

Úrslitaleikurinn fer fram í Búdapest laugardaginn 30. maí.