433

Stórstjarnan missir af leiknum mikilvæga og ekki víst að hann spili meira

Mynd
Getty Images

Bakvörðurinn Achraf Hakimi hjá Paris Saint-Germain verður frá keppni næstu vikur vegna meiðsla í læri.

Hakimi varð fyrir meiðslunum í 5-4 sigri PSG gegn Bayern Munchen í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar á þriðjudag.

Félagið hefur staðfest að hann þurfi meðhöndlun á þessum meiðslum og missi af seinni leiknum við Bayern á miðvikudag.

Ekki er ljóst nákvæmlega hversu lengi Hakimi verður frá og hvort hann geti spilað meira á tímabilinu, til að mynda í úrslitaleik Meistaradeildarinnar 30. apríl ef PSG kemst þangað.