433

Stráðu salti í sár samlanda sinna eftir sigurinn á þeim í gær - Sjáðu færsluna

Atletico Madrid skaut á Barcelona á samfélagsmiðlum í dag eftir að hafa slegið þá út í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gær.

Barcelona vann seinni leik liðanna í Madríd 1-2 en Atletico vann samanlagt 3-2. Börsungar eru brjálaðir yfir dómgæslunni í báðum leikjum og kvörtuðu þá sáran yfir lengd grassins á vellinum í gær.

Atletico brást við því með færslu í morgun. „Við elskum lyktina af nýslegnu grasi á morgnana,“ stóð þar ásamt mynd af vallarfletinum.

Þetta má sjá hér að neðan.