433

Mbappe segir að þetta sé liðið til að sigra í Meistaradeildinni

Mynd
Getty Images

Kylian Mbappe telur að Bayern Munchen sé liðið til að sigra í Meistaradeild Evrópu í ár.

Mbappe og félagar í Real Madrid eru mættir í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar og mæta einmitt Bayern þar í fyrri leiknum í næstu viku.

Þýska stórliðið er að eiga frábært tímabil heima fyrir og í Evrópu. „Bayern er sennilega heitasta liðið í Evrópu um þessar mundir,“ segir Mbappe.

Hann hefur þó fulla trú á sínu liði á móti þeim. „En ef það er eitthvað lið sem getur unnið þá er það Real Madrid.“