433

Vill banna tveimur enskum liðum að vera með í Meistaradeildinni

Mynd
Gabby Agbonlahor er fyrrum leikmaður Aston Villa

Gabriel Agbonlahor segir að Chelsea og Newcastle United eigi skilið eins árs bann frá Meistaradeild Evrópu eftir gengi liðanna á þessu tímabili.

Enska úrvalsdeildin átti erfitt uppdráttar í 16-liða úrslitum keppninnar þar sem Manchester City, Tottenham, Chelsea og Newcastle féllu öll úr leik.

Chelsea tapaði samanlagt 8-2 gegn Paris Saint-Germain, á meðan Newcastle beið afhroð gegn Barcelona, 8-3 samanlagt.

Agbonlahor gagnrýndi frammistöðuna harðlega og sagði hana vandræðalega fyrir deildina. Hann bætti við að Aston Villa ætti frekar skilið sæti í keppninni.

Arsenal og Liverpool eru því einu ensku liðin eftir í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.