Fókus

Ásdís Rán velur 3 kynþokkafyllstu leikmenn íslenska landsliðsins fyrir aðdáendur sína

Mynd

Búlgarskir fjölmiðlar hafa fylgst náið með Ásdísi Rán í gegnum tíðina og ekki hefur áhuginn minnkað í kjölfar árangurs landsliðsins á HM.

Ásdís, sem nú er stödd í Búlgaríu, var fengin til að

útnefna þrjá kynþokkafyllstu leikmenn

íslenska landsliðsins og hún sat ekki á svörunum.

Rúrik Gíslason er í fyrsta sæti hjá henni líkt og svo mörgum öðrum en hann þykir íðilfagur og mikið sjarmatröll.

Í öðru sæti er Hólmar Eyjólfsson en hún segir hann minna á fyrrum eiginmann sinn, Garðar Gunnlaugsson, þegar þau voru ung. Þá segir hún konu Hólmars jafnframt vera vinkonu sína.

Í þriðja sæti er svo Hörður Magnússon en hún segir hann hreinlega líkjast Ken hennar Barbie, sem er varla leiðum að líkjast.