Sussex-hertogahjónin Harry prins og Meghan Markle sóttu 40 ára afmælishátíð David Foster-stofnunarinnar í Viktoríu í Kanada á föstudag.
Í myndskeiði sem dreifðist á samfélagsmiðlum má sjá hjónin standa á rauða dreglinum og heilsa gestgjafanum, tónlistarframleiðandanum David Foster, sem hunsar Markle og útrétta hönd hennar. Hjónin stilla sér síðan upp með Foster og eiginkonu hans, Katharine McPhee. Má sjá Foster eiga stutt orðaskipti við Harry á bak við konurnar sem standa á milli þeirra.
„SPENNA á rauða dreglinum! Meghan Markle var opinberlega hunsuð af gestgjafanum David Foster. Horfið á meðan hann neitar að heilsa henni og hunsar útrétta hönd hennar. Æ,“ skrifaði notandinn sem upphaflega deildi myndskeiðinu.
TENSIONS on the red carpet! Meghan Markle publicly snubbed by host David Foster. Watch as he refuses to greet her and ignores her reaching hand. Ouch pic.twitter.com/Um02lbAYNG
— Paula Matanovich © (@paulamatanovich) August 8, 2026
Netverjar voru sammála um að viðbrögð Foster virtust vera af ásettu ráði.
„Hann hunsaði hana algjörlega en viðurkenndi að Harry væri þarna,“ skrifaði einn. „Þetta var svo augljóst,“ bætti annar við.
Aðrir héldu því þó fram að um saklaus samskipti hefði verið að ræða. Markle hefði aðeins verið að færa sig til og vísa Foster áfram til myndatöku.
„Hann gekk fram hjá henni á meðan hún var að leiðbeina honum kurteislega til að taka mynd. hvað er að ykkur?“
Heimildarmaður hafði samband við Page Six vegna atviksins og sagði að Foster og Markle hefðu heilsast stuttu áður en þau fóru á rauða dregilinn og að engin niðrandi samskipti hefðu verið í gangi.
Foster er margverðlaunaður tónlistarframleiðandi, tónlistarmaður og lagahöfundur, til nokkurra áratuga og á lagalista hans eru mörg þekktustu lög allt frá áttunda áratugnum. McPhee er söngk- og leikkona og varð hún í 2. sæti í American Idol árið 2006.
Harry og Markle hafa verið vinir Foster og McPhee í mörg ár. Harry, 41 árs, og Foster, 76 ára, eru þekktir fyrir að eiga náin „feðga“ tengsl, sérstaklega þar sem Harry hefur verið fjarlægur eigin fjölskyldu.
Árið 2020 var McPhee himinlifandi yfir „fallegri“ vináttu eiginmanns síns við Harry, eins og hún yfir í viðtali við Access Hollywood.
Markle og McPhee hafa þekkst frá barnæsku, en systir McPhee var með Markle í bekk í miðskóla.