Krullurnar á Degi B. Eggertssyni eru fyrir löngu orðnar að pólitísku vörumerki á Íslandi, frá því hann fór að leika aðalhlutverk í stjórnmálum fyrir meira en áratug hefur hann reglulega verið spurður út í hvaða sjampó hann noti, hvort hann sé í hárspreyinu eða geli, og margt fleira sem við kemur hárumhirðu karlmanna.
Dagur, sem er þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur, hefur einnig gert grín að hárinu en hann var háalvarlegur þegar hann var spurður út í geltegundina sína í hlaðvarpinu Chess After Dark.
„Nú þarf ég að vanda mig. Ég held að það heiti Shockwaves,“ sagði hann. „Það fæst í ICA-búðum í Svíþjóð. Það fékkst einu sinni í Bónus, svo bara hætti það að fást þar.“
Þá rakst hann á gelið í ICA í Svíþjóð. „Ég datt inn í ICA-búð, sem eru kaupfélögin í Svíþjóð, það er hægt að kaupa þetta þar. Ég er alltof sjaldan í Svíþjóð en þegar ég dett inn, tíu dollur!“