Fókus

Ragnhildur er innflytjandi - „Aldrei fengið yfir sig holskeflu fúkyrða fyrir að hafa ekki aðlagast“

Mynd
Ragga Nagli Mynd: Hanna

Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga nagli, fjallar í sínum nýjasta pistli á Facebook um það að hún sé innflytjandi og hafi búið síðustu 16 ár í Danmörku. Í pistlinum segir hún ekki hafa tileinkað sér danska siði og venjur nema að örlitlu leyti.

Naglinn er innflytjandi.

Sextán ár búsett í Baunalandi.

Talar ófullkomna dönsku með hreim.

Ólst ekki upp í dönskum kúltúr.

Og hefur ekki tileinkað sér siði og venjur Danans nema að örlitlu leyti.

Þekkir ekki einn einasta danska áhrifavald.

Hlustar ekki á danska tónlist nema klassíkera úr áttunni og níunni.

Finnst dönsk stjórnmál drepleiðinleg.

Fagnar ekki Mortensaften. Étur ekki kransaköku á gamlárskvöld. Bakar ekki bollur á Stóra Bænadeginum.

Les ekki Se og Hør eða Billed bladet.

Er drull um hvaða raunveruleikastjarna var að skilja.

Finnst flæskesteg viðbjóður.

Danskt nammi mjög bragðvont.

Anton Berg örugglega framleitt í forgarði Helvítis.

Smørrebrød ofmetin Júmbó samloka.

Bulow lakkrísinn bragðlaus stuldur á Kúlusúkki.

Ragga segir að í vinaneti hennar séu að mestu leyti Íslendingar, hún mæti á íslensk þorrablót, jólaböll og þrettándagleði.

Hefur verið 13 ár á snúrunni og drekkur því aldrei bæjara og því ekki hundsvit á Tuborg, Carlsberg eða Mikkeller.

Heldur ALDREI með Danmörku í fótbolta og bara í handbolta þegar Danir spila við Frakkland.

Finnst Danir of grobbnir og kokhraustir fyrir hvern leik, en aðallega biturð djúpt í sálinni yfir fjölmörgum tapleikjum Íslendinga við Baunann.

Hefur núll áhuga á borðtennis og badminton.

Naglinn hefur komist í kast við lögin í Danmörku og var tekin af politimand fyrir að keyra á 70 km hraða þar sem hámarkshraði var 50 km/h.

Aldrei upplifað vesen við önnur trúarbrögð og menningu

Ragga snýr sér næst að öðrum þjóðernum og segir að hinu megin götunnar sé fjölbýlishús þar sem 99% eru innflytjendur frá Tyrklandi, Írak, Íran, Pakistan. Í næstu götu er stærsta moskan á Norðurbrú, og streyma þangað kuflaklætt íslamstrúað fólk mörgum sinnum á dag, og í unnvörpum á föstudögum.

Segist Ragga aldrei hafa upplifað vesen af þessu návígi við önnur trúarbrögð og menningu.

Naglinn elskar að fara á kebabstað hér á Norðurbrú Kaupmannahafnar, einu stærsta samfélagi múslima á Norðurlöndum og löðra í sig grillkjöti, bulgur og hummus.

Og elskar líka að borða indverskan, víetnamskan, tælenskan, marokkóskan og sushi.

Allur þessi matur er eldaður og/eða undir innblæstri innflytjenda í Danmörku.

Bendir Ragga svo á nokkra alkunna menn sem allir voru innflytjendur:

Jón Sigurðsson var innflytjandi í Danmörku.

Albert Einstein og Arnold Schwarzenegger innflytjendur í Bandaríkjunum.

Freddie Mercury innflytjandi í Bretlandi.

Zlatan Ibrahimovic er innflytjandi í Svíþjóð.

Hefðu þessar þjóðir viljað segja þeim að drulla sér heim útlendingapakk?

Ragga heldur áfram: 

Ef ekki væri fyrir innflytjendur á Íslandi væri ekki marókkoskur veitingastaður á Siglufirði, Nings á Suðurlandsbraut, Vietnam á Laugavegi, Mandí í Skeifunni.

Við myndum þá bara éta soðna ýsu með hamsatólg undir dánarfregnum og jarðarförum á Gufunni.

Í Kaupmannahöfn er kirkja Íslendinga.

Rétt eins og bænahús múslima verður á Suðurlandsbraut.

Samkomustaður til að hitta landa sína, og iðka sína trú.

Enginn Dani hefur sagt óumbeðið í kommentakerfi að Íslendingar séu afætur og óþjóðalýður og ættu að hundskast heim til sín.

Ekki ein einasta hræða hefur sagt við Naglann: Þú ert ekki velkomin hér útlendingaógeð.

Aldrei fengið yfir sig holskeflu fúkyrða fyrir að hafa ekki aðlagast dönsku samfélagi og tekið upp þeirra siði og venjur.

Þjóðernisrembingurinn er af sauðahúsi nasista í orðræðunni hjá virkum í athugasemdum.

Hættum að ala á skautun, tortryggni og útlendingahatri.

Gröfum frekar eftir samkennd og virðingu.

Sýnum náungakærleika og komum fram við innflytjendur á Íslandi eins og við viljum að sé komið fram við okkur þegar við tökum okkur búsetu á erlendri grund.

Fjölmenning gerir mannlífið litríkara og fjölbreyttara og úðar yfir okkur víðsýni og þroska.