433

Þetta er verðmiðinn sem Arsenal þarf að borga fyrir Vinicius Junior

Mynd
Vinicius Junior Getty Images

Óvissa ríkir um framtíð Vinicius Junior hjá Real Madrid en spænski miðillinn Sport heldur því fram að félagið sé tilbúið að selja brasilíska sóknarmanninn fyrir 160 milljónir evra í sumar.

Vinicius, sem er 26 ára gamall, á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Real Madrid og samningaviðræður um framlengingu hafa enn ekki skilað árangri. Það hefur ýtt undir orðróm um möguleg félagaskipti.

Arsenal hefur verið orðað við Brasilíumanninn undanfarna daga, en samkvæmt AS á Spáni er forgangsverkefni leikmannsins að vera áfram hjá Evrópu- og Spánarmeisturunum.

Vinicius hefur verið einn af lykilmönnum Real Madrid undanfarin ár og átt stóran þátt í velgengni félagsins bæði í spænsku deildinni og Meistaradeild Evrópu. Þrátt fyrir óvissuna virðist því ekkert benda til þess að leikmaðurinn sé sjálfur að þrýsta á brottför.

Ef samningar um nýjan samning nást ekki á næstu mánuðum gæti Real Madrid þó neyðst til að íhuga sölu til að forðast að missa hann án endurgjalds þegar samningurinn rennur út.