433

Vonast eftir því að fá tækifæri á Anfield með nýjum stjóra

Mynd

Federico Chiesa segist vonast eftir nýju upphafi hjá Liverpool undir stjórn Andoni Iraola eftir að hafa fengið takmörkuð tækifæri á síðustu leiktíð.

Ítalinn kom inn á sem varamaður og skoraði þriðja mark Liverpool í 4:2 sigri á Sunderland í fyrsta undirbúningsleik Iraola sem knattspyrnustjóri félagsins.

„Þetta er alltaf ný byrjun í upphafi tímabils. Kannski hafa verið of mörg ný upphöf, en ég reyni einfaldlega að gera mitt besta fyrir nýja stjórann,“ sagði Chiesa eftir leikinn.

Hann fékk lítið að spreyta sig undir stjórn Arne Slot og byrjaði aðeins einn leik í ensku úrvalsdeildinni á síðustu tveimur tímabilum.

Þrátt fyrir vangaveltur um framtíð sína segir Chiesa að hugur hans sé eingöngu hjá Liverpool.

„Ég er hamingjusamur hér. Ég elska félagið, stuðningsmennina og allt sem tengist Liverpool. Ég ætla að leggja mig allan fram til að vinna mér inn tækifæri og svo kemur framtíðin í ljós,“ sagði ítalski landsliðsmaðurinn.