433

Vonast til að geta orðið sá leikmaður sem hann var hjá United

Mynd
Getty Images

Alejandro Garnacho segist vilja endurheimta sjálfstraustið undir stjórn Unai Emery eftir að hafa gengið til liðs við Aston Villa.

Argentínski kantmaðurinn kemur til Villa á láni frá Chelsea, en samningurinn inniheldur kaupskyldu sem tekur gildi ef ákveðin skilyrði nást. Þau eru talin auðveld í framkvæmd.

Garnacho gekk til liðs við Chelsea frá Manchester United síðasta sumar fyrir 40 milljónir punda en náði sér ekki á strik á sínu fyrsta tímabili á Stamford Bridge.

„Ég var að leita að félagi sem gæti veitt mér sjálfstraust og hjálpað mér að verða aftur sá leikmaður sem ég var fyrstu árin hjá Manchester United,“ sagði Garnacho í fyrsta viðtali sínu við Aston Villa.

Hann segir samtal sitt við Emery hafa ráðið miklu um ákvörðunina.

„Ég talaði við stjórann og hann gaf mér þetta sjálfstraust. Það skiptir líka miklu máli að fá að spila í Meistaradeildinni.“

Garnacho vonast nú til að ná aftur fyrri styrk á Villa Park.