433

Staðfesta kaupin á Summerville til Sádí Arabíu

Mynd
Getty Images

Al Hilal hefur gengið frá kaupum á hollenska kantmanninum Crysencio Summerville frá West Ham. Samkvæmt Sky Sports nemur kaupverðið allt að 60 milljónum punda, þar af 55 milljónum í fastri greiðslu auk fimm milljóna í mögulegum árangurstengdum greiðslum.

Með sölunni verður Summerville þriðji dýrasti leikmaður sem West Ham hefur selt frá upphafi. Aðeins félagaskipti Declan Rice til Arsenal og Mateus Fernandes til Tottenham hafa skilað Lundúnaliðinu hærri upphæðum.

Summerville kom til West Ham með miklar væntingar en hefur nú ákveðið að færa sig yfir til Sádi-Arabíu, þar sem Al Hilal heldur áfram að styrkja leikmannahóp sinn með áberandi nöfnum úr evrópskum fótbolta.

Al Hilal er eitt sigursælasta félag Sádi-Arabíu og hefur verið mjög umsvifamikið á leikmannamarkaðnum undanfarin misseri. Félagið bindur vonir við að Summerville verði lykilmaður í sóknarleik liðsins á komandi tímabili og hjálpi því í baráttunni um titla innanlands og í Asíu.