433

Segir mjög óvænt upp störfum

Mynd

Jermain Defoe hefur látið af störfum sem knattspyrnustjóri Woking eftir aðeins fjóra mánuði í starfi. Brottför hans kemur á óvart, enda hafði hann stýrt undirbúningi liðsins fyrir komandi tímabil í ensku C-deildinni (National League).

Samkvæmt enskum miðlum mætti Defoe ekki á æfingu liðsins á fimmtudag og tilkynnti síðar forráðamönnum félagsins símleiðis að hann hygðist hætta. Heimildir herma að ágreiningur milli Defoe og eins af stjórnendum Woking hafi átt þátt í ákvörðuninni, en félagið hefur ekki tjáð sig frekar um þær upplýsingar.

Woking staðfesti brottförina í stuttri yfirlýsingu þar sem fram kom að báðir aðilar hefðu komist að gagnkvæmu samkomulagi um að slíta samstarfinu þegar í stað.

Defoe stýrði liðinu í sex keppnisleikjum og tapaði aðeins einum þeirra. Undir hans stjórn endaði Woking í 10. sæti National League. Fyrrum framherjinn, sem er hvað þekktastur fyrir feril sinn með Tottenham og enska landsliðinu, var að stíga sín fyrstu skref sem aðalþjálfari.