433

Fólk undrandi á breytingunum - Hefur stækkað hressilega í sumar

Mynd

Benjamin Šeško hefur snúið til æfinga hjá Manchester United fyrir komandi tímabil og vakið athygli fyrir miklar líkamlegar breytingar. Slóvenski framherjinn virðist hafa bætt á sig umtalsverðum vöðvamassa í sumar og myndir frá æfingasvæði félagsins, Carrington, hafa vakið töluverð viðbrögð meðal stuðningsmanna.

Šeško gekk til liðs við Manchester United frá RB Leipzig fyrir stórfé síðasta sumar. Hann þurfti tíma til að aðlagast ensku úrvalsdeildinni en sýndi sífellt meira af getu sinni eftir því sem leið á tímabilið.

Mynd

Tímabilinu lauk þó með vonbrigðum fyrir hinn 23 ára gamla framherja, sem missti af síðustu þremur deildarleikjum vegna kálfameiðsla. Hann hefur heldur ekki verið í leikmannahópi Michael Carrick í fyrstu æfingaleikjum sumarsins þar sem hann vinnur enn að endurkomu sinni.

Samkvæmt enskum miðlum er þó búist við að Šeško verði klár þegar nýtt tímabil hefst.

Á meðan margir samherjar hans voru uppteknir á heimsmeistaramótinu hefur Šeško greinilega nýtt tímann vel í ræktinni. Stuðningsmenn United hafa hrósað líkamlegri umbreytingu hans og vonast til að aukinn styrkur skili sér í enn betri frammistöðu og fleiri mörkum á komandi leiktíð.