Arsenal og Tottenham eru sögð ætla að berjast um undirskrift norska landsliðsmannsins Antonio Nusa, sem leikur með RB Leipzig í Þýskalandi.
Hinn 21 árs gamli kantmaður hefur vakið mikla athygli eftir öflugt tímabil í Bundesligunni og góða frammistöðu á heimsmeistaramótinu. Nusa lék sex leiki fyrir Noreg á HM og skoraði fyrsta mark liðsins í sigri á Fílabeinsströndinni í 32-liða úrslitum. Hann kom einnig inn á sem varamaður í 2:1 tapi gegn Englandi eftir framlengingu í átta liða úrslitum.
Samkvæmt enskum miðlum metur RB Leipzig leikmanninn á um 51 milljón punda og hefur félagið ekki í hyggju að lækka þá kröfu.
Arsenal er sagt fara varlega í málið og hyggst fyrst sjá hvort Gabriel Martinelli verði seldur áður en félagið gerir formlegt tilboð í Nusa. Tottenham fylgist einnig grannt með stöðunni og gæti reynt að blanda sér af alvöru í baráttuna um einn eftirsóttasta unga sóknarmann Evrópu.