433

Chelsea að kaupa miðvörðinn á tæpar 60 milljónir punda

Mynd
Getty Images

Chelsea er á lokametrunum með að ganga frá kaupum á franska miðverðinum Maxence Lacroix frá Crystal Palace. Samkvæmt enskum miðlum er samkomulag milli félaganna í sjónmáli og kaupverðið talið nema um 55 milljónum punda.

Viðræður tóku mikinn kipp um helgina þegar Behdad Eghbali, einn eigenda Chelsea, og Steve Parish, stjórnarformaður Crystal Palace, funduðu á Aman-hótelinu í New York. Báðir voru staddir í borginni vegna úrslitaleiks heimsmeistarakeppni félagsliða og nýttu tækifærið til að ræða félagaskiptin.

Chelsea hafði áður sýnt Lacroix áhuga og endurvakti hann snemma í sumar. Frakkinn, sem er 26 ára gamall, gekk til liðs við Crystal Palace frá Wolfsburg fyrir 18 milljónir punda en hefur síðan fest sig í sessi sem einn sterkasti miðvörður ensku úrvalsdeildarinnar.

Takist félagaskiptin greiðir Chelsea rúmlega þrefalt það sem Palace lagði út fyrir varnarmanninn, sem hefur einnig vakið athygli fyrir frammistöðu sína í Evrópukeppnum.