433

Besti leikmaður HM á leið undir hnífinn

Mynd
Getty Images

Manchester City gæti þurft að vera án Rodri í upphafi nýs tímabils í ensku úrvalsdeildinni eftir að ljóst varð að spænski miðjumaðurinn þarf að gangast undir minni háttar aðgerð á baki.

Rodri var fyrirliði Spánar sem varð heimsmeistari um síðustu helgi eftir sigur á Argentínu í úrslitaleiknum. Hann var jafnframt valinn besti leikmaður mótsins og hlaut Gullboltann fyrir frammistöðu sína.

Samkvæmt Sky Sports snýst um minniháttar aðgerð að ræða, en óvíst er hvort Rodri verði klár í fyrsta leik Manchester City í úrvalsdeildinni gegn Bournemouth 23. ágúst. Hann var hvort eð er ekki talinn líklegur til að taka þátt í Samfélagsskildinum gegn Arsenal vegna stutts sumarleyfis eftir HM.

Rodri hefur glímt við erfið meiðsli undanfarin tvö ár. Alvarleg krossbandameiðsli haustið 2024 settu stórt strik í reikninginn og hann lék aðeins þrjá deildarleiki tímabilið 2024/25. Frekari meiðsli takmörkuðu svo þátttöku hans á síðasta tímabili, þar sem hann kom við sögu í 21 deildarleik.