Arsenal undirbýr nú tilboð upp á um 70 milljónir punda í brasilíska miðjumanninn Bruno Guimarães, fyrirliða Newcastle United, samkvæmt enskum miðlum. Leikmaðurinn hefur að sögn látið forráðamenn Newcastle vita að hann vilji ræða við Arsenal takist félögunum að ná samkomulagi um kaupverð.
Newcastle hefur þó ítrekað að Guimarães sé ekki til sölu og er félagið sagt orðið ósátt við að viðræður hafi hingað til farið fram í gegnum umboðsmenn leikmannsins en ekki með formlegu tilboði frá Arsenal.
Talið er að Arsenal hafi fengið þau skilaboð að kaup gætu gengið í gegn fyrir um 75 milljónir punda, en Newcastle telur að enn hærri upphæð þurfi til að sannfæra félagið um að selja einn mikilvægasta leikmann sinn. Forráðamenn félagsins benda jafnframt á að verð á fremstu miðjumönnum hafi hækkað verulega á undanförnum misserum.
Guimarães lék 41 leik fyrir Newcastle á síðasta tímabili og skoraði níu mörk. Fleiri félög úr ensku úrvalsdeildinni eru sögð fylgjast með stöðu hans, en Arsenal virðist vera eftirsóknarverðasti kosturinn í augum brasilíska landsliðsmannsins ef af félagaskiptum verður á þessu sumri.