Íþróttakynnirinn Emma Louise Jones hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum eftir að hún birti nýjar myndir af sér við komuna heim til Englands.
Jones, sem er 36 ára gömul, er þekkt fyrir störf sín hjá BBC, DAZN, Premier Sports og Leeds United TV. Hún hefur einnig byggt upp öflugan fylgjendahóp á Instagram þar sem rúmlega 440 þúsund manns fylgja henni.
Á nýju myndunum klæðist hún hvítum korsilettstopp með rennilás sem hún lýsti sem „uppáhalds toppnum sínu“. Með myndunum skrifaði hún að hún væri komin aftur til sólríks Englands en vildi gefa toppnum enn eitt augnablikið í sviðsljósinu.
Fyrr á þessu ári var Jones ráðin andlit speedway-útsendinga TNT Sports. Hún hefur sagst hafa mikinn áhuga á að prófa sportið sjálf, þrátt fyrir að hafa fengið að heyra margar sögur af meiðslum ökumanna.
Jones er einn vinsælasti íþróttakynnir Bretlands um þessar mundir.