Phil Foden hefur skrifað undir nýjan langtímasamning við Manchester City og er nú samningsbundinn félaginu til ársins 2030, með möguleika á eins árs framlengingu.
Hinn 26 ára gamli Foden, sem er uppalinn hjá City, fékk umtalsverða launahækkun frá fyrri samningi sínum sem tryggði honum um 225 þúsund pund á viku.
Samningurinn kemur á mikilvægum tímapunkti fyrir Foden eftir erfið tvö tímabil og þá var hann ekki valinn í HM-hóp Englands í sumar.
„Það er ótrúleg tilfinning að skrifa undir samninginn. Ég á eiginlega ekki orð yfir það að fá að halda ferðalaginu áfram,“ sagði Foden.
„Ég á nú þegar svo margar minningar hér og hef unnið marga titla. Þetta félag skiptir mig öllu máli.“
Foden bindur miklar vonir við nýjan knattspyrnustjóra City, Enzo Maresca, og telur að Ítalinn geti hjálpað honum að finna sitt besta form á ný.