Everton hefur bæst í hóp þeirra félaga sem hafa áhuga á norska markverðinum Ørjan Nyland, samkvæmt enskum miðlum.
Nyland er samningslaus eftir að hafa yfirgefið Sevilla í sumar og vakti mikla athygli með frammistöðu sinni á heimsmeistaramótinu þar sem Noregur komst alla leið í átta liða úrslit. Þar tapaði liðið 2:1 fyrir Englandi eftir framlengingu.
Hinn 35 ára gamli markvörður lék fimm af sex leikjum Norðmanna á mótinu og hélt markinu hreinu í þrígang. Þá var hann með um 70 prósenta markvörslu á meðan á mótinu stóð og á nú yfir 60 A-landsleiki fyrir Noreg.
Manchester City og Leeds United hafa áður verið orðað við Nyland en nú er Everton einnig komið inn í myndina.
Jordan Pickford er áfram fyrsti kostur Davids Moyes í marki Everton en Mark Travers hefur verið orðaður við brottför, sem gæti skapað pláss fyrir Nyland í leikmannahópi félagsins.