Mynd
Óvissa með þátttöku lífeyrissjóða í hlutafjárútboði Icelandair
Í dag hefst hlutafjárútboð Icelandair. Stóru lífeyrissjóðirnir hafa ekki enn tekið ákvörðun um hvort þeir taka þátt í útboðinu. Þátttaka lífeyrissjóðanna mun ráða úrslitum um hvort félaginu tekst að sækja sér nýtt hlutafé upp á 20 milljarða króna. Markaður Fréttablaðsins skýrir frá þessu í dag.